Þagði í viku eftir sambandsslitin

Leikkonan Emma Watson.
Leikkonan Emma Watson. mbl.is/AFP

Leikkonan Emma Watson birtist á forsíðu septemberblaðs breska Vogue og var þar lýst sem rödd heillar kynslóðar. Í viðtalinu inni í blaðinu lýsti leikkonan því þó að þegar að hún hafi slitið sambandið sínu við Matthew Janney hafi hún þagað í viku.

Watson sagði sambandsslitin hafa verið skelfileg og í raun það hræðileg að hún ákvað að tala ekki í heila viku. „Mér leið hræðilega illa, meira að segja áður en sambandinu lauk þannig að ég ákvað að tala ekkert í viku til að finna út hvað ég vildi.“

Hún segir ákvörðunina um að slíta sambandinu hafa verið sameiginlega en parið hafði verið saman í um ár. „Þeir strákar sem ég hef verið með leyfa mér yfirleitt að blómstra. Þeir hafa byggt mig upp og mér hefur aldrei liðið eins og það sé eitthvað að ástarlífi mínu vegna starfsframa míns.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson