Nicole Kidman mætti ekki heldur

Nicole Kidman.
Nicole Kidman. AFP

Hvorki Tom Cruise né Nicole Kidman mættu í brúðkaup dóttur þeirra Isabellu sem fór fram í síðasta mánuði. Eins og mbl.is hefur fjallað um var vitað að Tom hefði ekki mætt en hins vegar var talið að Nicole hefði látið sjá sig. Hins vegar herma heimildir að svo hafi ekki verið.

Samkvæmt fréttavef Daily Telegraph var tilgangurinn að draga ekki athygli að brúðkaupinu sem fór aðeins fram með nánustu vinum og ættingjum. Að undanskildum þeim Tom og Nicole. Isabella er 22 ára og gekk að eiga tölvunarfræðinginn Max Parker. Ennfremur segir að talið sé að Tom hafi greitt fyrir brúðkaupið. Þá sé talið að athöfnin hafi verið blanda af kenningum Vísindakirkjunnar og kristni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson