Justin Bieber kærir myndbirtingu

Bieber er ekki hress með nektarmyndirnar.
Bieber er ekki hress með nektarmyndirnar. Af Facebook

Justin Bieber var á dögunum myndaður þar sem hann sleikti sólina með vinkonu sinni, fyrirsætunni Jayde Pierce. Það sem vakti athygli var að söngvarinn knái var ekki bara fáklæddur, heldur algerlega nakinn.

Myndirnar fóru fljótt í dreifingu á netinu, og kepptust fjölmiðlar við að sýna sköpulag söngvarans knáa.

Contactmusic greindi frá því að Bieber væri ekki allskostar sáttur við myndbirtingarnar og að hann hefði lagt fram kæru á hendur New York Daily News sem fyrstir birtu myndirnar. Einnig óskaði hann þess að myndirnar yrðu fjarlægðar innan hálfs sólarhrings. Myndirnar eru þó enn uppi, þó að miðsvæði söngvarans hafi verið skyggt.

Getgátur hafa verið uppi um hvort myndirnar séu falsaðar, en samkvæmt frétt The Hollywood Reporter er svo ekki. Í afriti af bréfi sem lögfræðiteymi Biebers sendi frá sér kemur meðal annars fram að myndirnar sem fjölmiðlar hafi undir höndunum hafi verið fengnar með ólöglegum hætti og að dreifing þeirra stangist á við lög.

Bieber er alls ekki fyrsta stjarnan sem þarf að standa í stappi vegna óviðeigandi mynda, en fyrr á þessu ári kærði Hulk Hogan vefmiðilinn Gawker eftir að hafa birt kynlífsmyndband sem hann kom fram í.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant