Tom Cruise æfur

Tom Cruise stillir sér upp á rauða dreglinum.
Tom Cruise stillir sér upp á rauða dreglinum. mbl.is/AFP

Svo virðist vera sem Tom Cruise sé reiður fyrrverandi eiginkonu sinni, Katie Holmes, fyrir að eiga í samskiptum við yfirlýstan óvin Vísindakirkjunnar, leikkonuna Leah Remini.

Eins og frægt er orðið gaf Remini út bók fyrir skemmstu, Troublemaker: Surviving Hollywood and Scientology. Þar lýsir hún reynslu sinni af trúarsöfnuðinum, en leikkonan yfirgaf kirkjuna fyrir nokkrum árum. Remini kom síðan fram í viðtali á dögunum þar sem hún talaði um Tom Cruise og fyrrverandi eiginkonu hans, Katie Holmes.

Í kjölfar viðtalsins sendi Holmes frá sér yfirlýsingu þar sem hún bað Remini afrökunar á hegðun sinni.

Contactmusic greindi frá því að ónefndur heimildarmaður Radaronline segði Cruise bálreiðan vegna ummælanna.

„Tom er æfur út í Katie vegna þess að hann veit, og kirkjan veit, að hún hefur skrifað undir þagnareið.“

„Katie hefur samþykkt að segja ekki frá neinum leyndarmálum.“

„Svona árásargjörn hefur hún ekki verið síðan hún kom honum í opna skjöldu með skilnaðarpappírum. Hún er að niðurlægja Tom á ný.“

Frétt mbl.is: Katie Holmes grætti mig næstum

Katie Holmes skartaði stuttu hári á Met Gala ballinu fyrr …
Katie Holmes skartaði stuttu hári á Met Gala ballinu fyrr á árinu. mbl.is/AFP
Leah Remini olli heldur betur fjaðrafoki með bók sinni.
Leah Remini olli heldur betur fjaðrafoki með bók sinni. Skjáskot af Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson