Fréttamiðillinn Contactmusic greindi frá því að sjónvarpsframleiðandinn Anna Eberstein, kærasta leikarans Hugh Grant, hafi fætt stúlkubarn í síðustu viku. Nafn þeirrar stuttu hefur enn ekki verið gert opinbert, en þetta er annað barn þeirra saman.
Grant á einnig tvö börn af fyrra sambandi sínu við Tinglan Hong, hina fjögurra ára Tabitha Jing og Felix sem er tveggja ára. Þetta er því fjórða barn leikarans á jafnmögum árum.
Skömmu eftir að elsta dóttir Grants kom í heiminn viðurkenndi hann að föðurhlutverkið hefði komið honum skemmtilega á óvart.
„Margir höfðu varað mig við og sagt að ungbarnatímabilið væri ekki sérlega spennandi. Ég er þó mjög spenntur. Ég hafði ákveðið að ég myndi blekkja sjálfan mig í gegnum þetta – en það hefur ekki verið þörf á neinum blekkingum hingað til. Ég er í sjöunda himni með hana og mér finnst ég betri manneskja í kjölfarið.“
Hinn 55 ára leikari er greinilega hrifinn af nýja hlutverkinu, ef marka má hversu iðinn hann hefur við kolann undanfarið.