Louis Tomlinson frumsýnir soninn

Louis Tomlinson er meðlimur í hljómsveitinni One Direction.
Louis Tomlinson er meðlimur í hljómsveitinni One Direction. AFP

Louis Tomlinson, meðlimur drengjasveitarinnar One Direction, varð faðir í fyrsta sinn á dögunum þegar barnsmóðir hans, Briana Jungwirth, ól dreng.

Tomlinson og Jungwirth kynntust snemma á síðasta ári og áttu í skammvinnu sambandi, en eru ekki par í dag.

Frétt mbl.is: Missti næstum af fæðingunni

Tomlinson, sem flutti búferlum til Los Angeles fyrir skemmstu, segist þó ætla að taka fullan þátt í uppeldi sonarins. Þá hefur hann einnig útvegað Jungwirth og syni þeirra húsnæði í návígi við eigið heimili.

Tomlinson er eins og sjá má afar hreykinn af þeim stutta, en hann deildi mynd að þeim feðgum með fylgjendum sínum á Twitter.

„Ég kynni litla kútinn minn, Freddie.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant