Denis Grbic valinn Kokkur ársins 2016

Frá vinstri: Hafsteinn Ólafsson, hafnaðir í öðru sæti, Denis Grbic …
Frá vinstri: Hafsteinn Ólafsson, hafnaðir í öðru sæti, Denis Grbic stóð uppi sem sigurvegari og Ari Þór Gunnarsson tók þriðja sætið.

Denis Grbic, matreiðslumaður hjá Grillinu á Hótel Sögu, er Kokkur ársins 2016, en hann bar sigur úr býtum í úrslitakeppni sem fram fór í Hörpu í gær. 

Í öðru sæti varð Hafsteinn Ólafsson,  matreiðslumaður hjá Nasa, og í því þriðja Ari Þór Gunnarsson, hjá Fiskfélaginu, að því er fram kemur í tilkynningu. Það eru Klúbbur matreiðslumeistara og Kokkalandsliðið sem standa að keppninni Kokkur ársins.

Fimm keppendur komust áfram úr forkeppni sem haldin var síðastliðinn mánudag en einnig kepptu þeir Sigurjón Bragi Geirsson hjá Kolabrautinni og Axel Björn Clausen hjá Fiskmarkaðnum í úrslitum.  

Verkefni keppenda var að elda forrétt, aðalrétt og eftirrétt úr úrvali hráefna sem keppendur fengu aðeins uppgefin  degi fyrir keppni. 

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, krýndi Kokk ársins á sérstökum kokkalandsliðskvöldverði sem var haldinn samhliða keppninni.

Denis Grbic hlaut 250 þúsund króna verðlaun ásamt þátttökurétt í kepninni um matreiðslumann Norðurlandanna eða ,,Nordic Chef of the Year” sem haldin verður í Herning í Danmörku í mars.

Yfirdómari keppninnar  í ár var Sven Erik Renaa frá Noregi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler