Adele bauð skötuhjúum upp á svið

Tónleikaferðalag Adele er hafið.
Tónleikaferðalag Adele er hafið. Skjáskot Self.com

Dægurlagadrottningin Adele kom ungum elskendum heldur betur í opna skjöldu þegar hún kallaði þá upp á svið á miðjum tónleikum.

Söngkonan var að flytja lag sitt „Make You Feel My Love“ þegar hún kom auga á mann sem hafði skellt sér á skeljarnar í miðjum áhorfendaskaranum. Adele var svo frá sér numin að hún bauð skötuhjúunum upp á svið þar sem hún faðmaði þau að sér og óskaði þeim til hamingju.

„Ég trúi þessu ekki, þetta er algerlega klikkað“ sagði tilvonandi brúðurin í samtali við Daily Mail.

Myndbandið af atburðinum má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant