Fyrirsætan og raunveruleikastjarnan Kendall Jenner er sífellt undir vökulu auga ljósmyndara sem fylgjast með ferðum hennar. Nú telja fjölmiðlar vestanhafs að stúlkan sé komin með nýjan kærasta, enda náðust myndir af skötuhjúunum á dögunum.
Sá heppni er NBA leikmaðurinn Jordan Clarkson, en hann spilar körfubolta fyrir LA Lakers. Í raun skelltu skötuhjúin sér út á lífið eftir leik Clarksons á dögunum, og virtist fara vel á með þeim.
Jenner hefur áður meðal annars verið orðuð við söngvarann Harry Styles, sem er meðlimur drengjasveitarinnar One Direction.
Frétt mbl.is: Segir Styles illa þefjandi