Prince gerði ekki erfðaskrá

AFP

Systir tónlistarmannsins Prince, Tyka Nelson, sagði í dag að bróðir sinn hefði ekki skilið eftir sig neina erfðaskrá svo vitað væri og óskaði eftir því að dómstólar tilnefndu sérstakan umsjónarmann með viðamiklu búi hans. Þetta kemur fram í frétt AFP.

Fram kemur í fréttinni að Nelson hafi tilkynnt héraðsdómi í Minnesota-ríki í Bandaríkjunum að Prince hafi ekki skilið eftir sig eiginkonu, foreldra, börn, systur eða bræður fyrir utan þann sem nefndur væri í tilkynningunni. Það er hana sjálfa.

„Mér er ekki kunnugt um að til sé erfðaskrá og hef enga ástæðu til að ætla að hinn látni hafi undirritað nokkuð skjal af því tagi,“ segir í tilkynningu hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant