Vill nálgunarbann á Depp

Johnny Depp og Amber Heard.
Johnny Depp og Amber Heard. AFP

Amber Heard mætti í réttarsal í dag með marbletti í andlitinu og sakaði eiginmann sinn, bandaríska kvikmyndaleikarann Johnny Depp, um að hafa ráðist á sig. Fór hún fram á að sett yrði nálgunarbann á hann samkvæmt frétt AFP.

Heard fór fram á skilnað frá Depp fyrr í þessari viku og framfærslu af hans hálfu. Hún segist vera fórnarlamb ítrekaðra líkamsárása af hálfu leikarans. Þannig hafi Depp lamið sig í andlitið með farsímanum sínum síðasta laugardagskvöld.

Haft er eftir henni að Depp hafi boðið henni peninga eftir að hafa lamið hana með símanum fyrir að segja ekki frá árásinni. Þess í stað hafi hún sótt um skilnað á mánudaginn. Hún segist verða fyrir ítrekuðum hótunum af hálfu leikarans.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson