Heard var gift í laumi

Amber Heard og Tasya Van Ree.
Amber Heard og Tasya Van Ree. Ljósmynd skjáskot Mirror.co.uk

Amber Heard, sem á dögunum sótti um skilnað frá eiginmanni sínum, leikaranum Johnny Depp, hafði áður verið gift.

Samkvæmt frétt Mirror skráði leikkonan sig í óvígða sambúð fyrir átta árum, með þáverandi unnustu sinni, ljósmyndaranum Tasyu Van Ree. Samkynja hjónabönd voru þó ekki leyfileg í Bandaríkjunum á þeim tíma.

Þegar samkynja hjónabönd voru leyfð í New York, árið 2011, héldu Heard og Van Ree síðan veislu til að fagna áfanganum. Samkvæmt ónefndum heimildamanni Mirror héldu þær þó hjónabandi sínu leyndu og voru nánustu vinir og ættingjar beðnir að þegja yfir ráðahagnum.

Heard, sem jafnframt tók upp nafn ljósmyndarans, skildi síðan við Van Ree árið 2013. Leikkonan tók síðan aftur upp eigið nafn í apríl 2014, þremur mánuðum eftir að Depp hafði beðið hennar.

Heard, sem var gift Depp í 15 mánuði, segir að hann hafi ítrekað beitt hana líkamlegu og andlegu ofbeldi á meðan sambandi þeirra stóð og fór því fram á nálgunarbann á hendur leikaranum. Þá segir hún Depp eiga við áfengis- og fíkniefnavanda að stríða, auk þess sem hún óttast skapofsaköst hans.

Dómstóll í Bandaríkjunum úrskurðaði á dögunum að Depp skyldi sæta nálgunarbanni gagnvart Heard.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson