Eignuðust stúlkuna Violet

Leikkonan Emily Blunt.
Leikkonan Emily Blunt. AFP

Leikarahjónin Emily Blunt og John Krasinski eignuðust sitt annað barn fyrir um tveimur vikum en héldu því leyndu þangað til í gær. „Hvað er betra en að fagna þjóðhátíðardegi og tilkynna fólki um fjórða fjölskyldumeðliminn,“ sagði Krasinski á twittersíðu sinni.

Parið gifti sig árið 2010 og eignaðist sitt fyrsta barn, Hazel, í febrúar árið 2014. Fyrir tveimur vikum eignuðust þau svo dótturina Violet. Blunt er frá Bretlandi en hjónin eru búsett í Los Angeles. Á meðgöngunni lék hún í myndinni Girl On the Train sem er byggð á samnefndri skáldsögu Paulu Hawkins.

Krasinski, sem er þekktur fyrir hlutverk sitt í amerísku útgáfunni af þáttunum The Office, sagði nýlega frá því í viðtali við Contactmusic að eldri dóttir þeirra hjóna væri farin að tala með breska hreimnum frá Blunt.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant