Fyrrverandi fyrirsætan Katie Price vandaði barnsföður sínum, Dwight Yorke, ekki kveðjurnar á dögunum þegar hún kallaði hann sannkallaðan heigul.
Price segir Yorke hafi átt erfitt með að sætta sig við fötlun sonar þeirra, Harvey, en hann þjáist meðal annars af Prader-Willi heilkenninu auk þess sem hann er blindur og á einhverfurófi.
Einstaklingar sem þjást af Prader-Willi heilkenninu finna fyrir stöðugu hungri, sem gerir það að verkum að þeir eru gjarnan í yfirþyngd.
„Ég útskýrði ástand Harveys fyrir Dwight margoft, en hann neitaði að skilja það og hélt áfram að tönnlast á því að hann væri feitur. Það er sorglegt að hann skuli ekki geta tekið Harvey eins og hann er.“
Frétt Daily Mail