Brosnan biðst afsökunar á auglýsingu

Auglýsingin með Brosnan í aðalhlutverki á forsíðu dagblaðs í Nýju …
Auglýsingin með Brosnan í aðalhlutverki á forsíðu dagblaðs í Nýju Delí. AFP

Írski leikarinn Pierce Brosnan hefur beðið inversku þjóðina afsökunar á því að hafa birst í auglýsingu fyrir tugguvöru, sem inniheldur tóbak. Segist hann ekki hafa vitað hvað varan innihélt en sjálfur missti Brosnan eiginkonu og dóttur vegna krabbameins.

Um er að ræða pan masala, blöndu sem inniheldur tóbak, krydd, lime og hnetur. Vitað er að notkun hennar eykur líkurnar á munn- og hálskrabbameinum, og hafa stjórnvöld bannað framleiðendum að auglýsa vöruna.

Auglýsingaherferðin þar sem Brosnan kom við sögu náði bæði til ljósvakamiðla og dagblaða, og vakti mikla hneykslan. Fyrirtækið hefur sagt að þær tegundir pan masala sem leikarinn var fenginn til að kynna innihaldi hvorki tóbak né nikótín, en að minnsta kosti ein þeirra inniheldur supari, hnetu sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir krabbameinsvaldandi.

Brosnan sagðist í dag harma að ímynd hans hefði verið notuð til að auglýsa skaðlega vöru, en honum hefði verið tjáð að hún væri notuð til að fríska upp á andardráttinn og hvítta tennurnar, og væri fullkomlega náttúruleg og laus við skaðleg efni.

Sagði leikarinn að vegna þess að hann hefði misst eiginkonu sína, dóttur og fjölda vina vegna krabbameins, væri hann dyggur stuðningsmaður heilbrigðis kvenna og rannsókna í þágu heilbrigðisvísindanna.

Þá sagði Brosnan að framleiðslufyrirtækið, Pan Bahar, hefði misnotað auglýsingaherferðina til að gefa í skyn að hann styddi allar vörur fyrirtækisins.

Sagðist hann myndu gera allt í sínu valdi til að bæta úr málum og baðst innilegrar afsökunar.

Guardian sagði frá.

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson