Gagnrýnd fyrir að flagga demöntunum

Khloé Kardashian er ekki í samfélagsmiðlabanni.
Khloé Kardashian er ekki í samfélagsmiðlabanni. Ljósmynd / skjáskot Instagram

Khloé Kardashian, yngri systir Kim Kardashian, hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að flagga forláta skartgripum á samfélagsmiðlum.

Eins og alþjóð líklega veit var Kim Kardashian rænd í París fyrr í mánuðinum, og vildu margir meina að samfélagsmiðlanotkun hennar hefði gert ræningjunum auðveldara fyrir, en hún fór ekki í felur með að eiga safn gríðarlega verðmætra skartgripa.

Frétt mbl.is: Hver var hlutur samfélagsmiðla í ráninu?

Khloé Kardashian hefur ekki haldið sig fjarri samfélagsmiðlum líkt og systir hennar, en hún deildi mynd af þremur forláta demantshringum á Instagram-síðu sinni. Á myndinni sést einnig hönd kærasta hennar, körfuboltakappans Tristan Thompson, sem sjálfur bar stærðarinnar hring.

❤️

A photo posted by Khloé (@khloekardashian) on Oct 25, 2016 at 8:54pm PDT

Margir fylgjendur stjörnunnar hafa látið móðan mása í athugasemdum við færsluna og skammað hana fyrir að gera sömu mistök og systir hennar.

Frétt mbl.is: Skammaði Kardashian fyrir að flagga auðnum

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson