Ofurfyrirsætan Cara Delevingne er sérlega hrifin af húðflúrum, og skartar í kringum 20 slíkum.
Á dögunum bætti hún einu í safnið, en hún hefur látið skreyta handarbak sitt með mynd af snáki.
Það var hinn eftirsótti Brian Woo, eða Doctor Woo líkt og hann er kallaður, sem flúraði fyrirsætuna. Woo hefur verið sérlega vinsæll undanfarið, og er biðlistinn eftir tíma hjá honum afar langur.
Delevingne er, eins og áður sagði, enginn nýgræðingur þegar kemur að húðflúrum. Hún er til að mynda með mynd af ljóni á fingrinum, broskall á tánni og orðið „Bacon“ á flúrað á ilina svo eitthvað sé nefnt. Fyrr í haust lét hún síðan flúra tvö augu aftan á hálsinn á sér.
Frétt mbl.is: Næstum með augu í hnakkanum