Hnakkrifust á rauða dreglinum

Sjónarvottar segja að hjónin hafi hnakkrifist fyrir frumsýninguna.
Sjónarvottar segja að hjónin hafi hnakkrifist fyrir frumsýninguna. Skjáskot / Daily Mail

Það er ekki eintómur dans á rósum að vera stórstjarna, en þær eiga víst í vandræðum með ástarsambönd sín eins og við hin.

Eitthvað virðist hafa kastast í kekki hjá stjörnuhjónunum Nicole Kidman og Keith Urban, en Daily Mail greinir frá því að hjónin hafi hnakkrifist í námunda við rauða dregilinn þegar kvikmyndin Lion var frumsýnd í Ástralíu. Síðan eru þau sögð hafa stillt sér upp fyrir ljósmyndara, en að lokinni myndatökunni eru þau sögð hafa byrjað að hreyta ónotum í hvort annað á ný.

Talið er að Kidman renni hýru auga til Óskarsverðlaunanna, en hún hefur verið afar upptekin við kynningarstörf í tengslum við kvikmyndina. Fregnir herma að Urban sé orðinn þreyttur á því hversu upptekin eiginkonan er, en hjónin eyddu litlum tíma saman á síðasta ári sökum anna.

„Þau áttu að hittast í Sydney og eyða hátíðunum saman, gleyma vinnunni í nokkrar vikur og einbeita sér að fjölskyldunni,“ er haft eftir ónefndum heimildamanni.

Hjónakornin virðast þó vera búin að sættast, en Kidman skellti sér upp á svið á tónleikum eiginmannsins á gamlárskvöld og var hin hressasta.

Kidman skellti sér upp á svið á tónleikum eiginmannsins.
Kidman skellti sér upp á svið á tónleikum eiginmannsins. Skjáskot / Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson