Indverski leikarinn Om Puri, sem meðal annars lék í Gandhi, City of Joy og East is East, er látinn. Puri, sem var 66 ára gamall, lést úr hjartaáfalli í dag á heimili sínu í Mumbai.
Puri lék í fjölmörgum indverskum myndum, breskum myndum og Hollywood-myndum og minnast margir hans á Twitter. Kvikmyndaferill hans nær allt aftur til áttunda áratugarins en meðal þekktra mynda sem hann lét í eru Aakrosh (1980) og Ardh Satya (1982), en fyrir hlutverk sitt í henni var Puri valinn besti leikarinn í aðalhlutverki í heimalandinu.