Segist ekki hafa látið krukka í sig

Kendall Jenner þvertekur fyrir að hafa látið eiga við andlitið …
Kendall Jenner þvertekur fyrir að hafa látið eiga við andlitið á sér. Skjáskot / Instagram

Fyrirsætan og raunveruleikastjarnan Kendall Jenner þvertekur fyrir að hafa gengist undir fegrunaraðgerðir, en sá orðrómur hefur verið ansi hávær undanfarið eins og fram kemur í frétt Daily Mail.

„Þetta er svo þreytandi. Ég er fyrirsæta, hvers vegna ætti ég að láta gjörbreyta andlitinu á mér. Það nær ekki nokkurri átt,“ sagði fyrirsætan, sem er orðin hundleið á sögusögnunum.

Orðrómurinn fór á flug eftir að mynd birtist af Kendall og yngri systur hennar, Kylie, á Twitter en mörgum þótti Kendall ólík sjálfri sér. Hún segist þó einungis hafa verið meira förðuð en vanalega.

„Ég þreif farðann ekki framan úr mér vegna þess að ég hafði svo lítinn tíma. Síðan fór ég út og sinnti mínum verkefnum. Allt í einu fóru að birtast fréttir af okkur þar sem því var haldið fram að ég hefði látið laga varirnar á mér, og að ég hefði látið endurbyggja á mér andlitið. Ég hugsaði með sjálfri mér að þetta væri klikkað.“

Mörgum þótti Kendall ólík sjálfri sér á myndinni, sem birtist í nóvember á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler