Leikarinn Bill Paxton, sem er þekktur fyrir hlutverk í myndum á borð við Titanic, Aliens og Twister, er látinn, 61 árs gamall.
Þetta staðfesti talsmaður fjölskyldu hans við blaðið Us Weekly.
„Það er með mikilli sorg í hjarta sem við segjum frá því að Bill Paxton hafi látist vegna erfiðleika í kjölfar aðgerðar,“ sagði talsmaðurinn í yfirlýsingu.
Paxton lætur eftir sig eiginkonu, Louise Newbury, og tvö börn.
Paxton hlaut m.a. Emmy-tilnefningu fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttaröðinni Hatfields and McCoys, en hann lék á móti Kevin Costner.