Blaðamaður Daily Mail fullyrðir að Harry Bretaprins sé að flytja inn í nýja íbúð í Kensington-höll þar sem Suits-leikkonan Meghan Markle mun búa með honum.
Nú standa framkvæmdir yfir á íbúðinni og sýnir Harry þeim mikinn áhuga. „Hann er alltaf að koma og spyrja hvenær íbúðin verði tilbúin,“ segir heimildarmaður Daily Mail. „Hann virðist vera að flýta sér að flytja inn með Meghan.“
Eins og er býr Harry í Nottingham Cottage hjá Kensington-höll en íbúðin sem hann hyggst flytja í er töluvert nær álmunni sem Vilhjálmur bróðir hans og fjölskylda munu búa í.