Biðst ekki afsökunar vegna súludans

Jennifer Lawrence ætlar ekki að biðjast afsökunar fyrir að hafa …
Jennifer Lawrence ætlar ekki að biðjast afsökunar fyrir að hafa dansað súludans. mbl.is/AFP

Jennifer Lawrence segist ekki ætla að biðjast afsökunar fyrir að hafa slett úr klaufunum á strippstað í Vín í síðasta mánuði en myndband af leikkonunni birtist á samfélagsmiðlum þar sem hún sást dansa súludans. 

Samkvæmt Mirror var Lawrence stödd í Austurríki við tökur á nýrri mynd þegar hún fór út að skemmta sér í tilefni af afmæli besta vinar síns. „Ég ætla ekki að biðjast afsökunar, ég skemmti mér ógeðslega vel þetta kvöld,“ sagði leikkonan. 

„Sjáðu til, enginn vill vera minntur á það á netinu að hafa reynt að dansa við súlu,“ sagði Lawrence og bætti því við að hún hafi ekki verið á brjóstahaldaranum heldur Alexander Wang-topp. „Ég ætla ekki að ljúga, ég held að dansinn minn sé frekar góður. Þrátt fyrir engan styrk í miðjunni,“ bætti hún við að lokum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant