Trump gerðist boðflenna í brúðkaupi

Donald Trump gerir það sem hann langar til.
Donald Trump gerir það sem hann langar til. mbl.is/AFP

Nýgiftu hjónin Kristen Piatkowski og Tucker Gladhill fengu heldur betur óvæntan gest í brúðkaupið sitt á laugardaginn en enginn annar en forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, gerðist boðflenna í brúðkaupsveislunni. 

Brúðhjónin voru með brúðkaupsveislu í Trump National Golf Club í Bedminister Township í New Jearsey og það vildi svo til að Trump var einnig í New Jearsey um helgina. 

He stopped to say hello at the wedding party 🥂🇺🇸

A post shared by Madelyn Smith (@madelyns_moving_castle) on Jun 10, 2017 at 7:18pm PDT

Í myndbandi sem fylgir fréttinni sést Trump kalla á brúðina og kyssa hana. Hann fékk síðan gestina til þess að að kalla „USA, USA“ með sér. Forsetinn er umdeildur en það er ekki annað að sjá en að brúðhjónin og gestir þeirra hafi verið hæstánægð með uppátæki Trumps. 

Svo virðist sem að forsetinn hafi gaman af svona uppákomum en í febrúar gerðist hann boðflenna í brúðkaupi ásamt forsætisráðherra Japan, Shinzo Abe. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant