Sheen kærður fyrir að leyna HIV-smiti

Charlie Sheen hefur verið kærður fyrir að hafa ekki sagt …
Charlie Sheen hefur verið kærður fyrir að hafa ekki sagt konu frá HIV-sjúkdómnum áður en þau stunduðu óvarið kynlíf. AFP

Bandaríski leikarinn Charlie Sheen hefur verið kærður fyrir að hafa með gáleysislegum hætti gert konu sem hann hafði samfarir við berskjaldaða fyrir HIV. Konan segir Sheen hafa verið svo ósvífinn að hann hafi kallað sig göfugan fyrir að segja henni frá sjúkdómnum eftir að þau sváfu saman.

Frá þessu greinir slúðurvefurinn TMZ og vísar þar til kæru sem vefurinn hefur undir höndum. Í kærunni kemur hvergi beinum orðum fram að um Sheen sé að ræða heldur ðaeins að hinn ákærði hefði greint frá HIV-sjúkdómnum í sjónvarpi 17. nóvember 2015, daginn sem Sheen fór í sjónvarpsþáttinn Today og sagði frá því að hann væri greindur með sjúkdóminn.

Konan sem er upprunalega frá Rússlandi segir að skömmu eftir að hún hitti kærða hefðu þau stundað kynlíf og á endanum, óvarið kynlíf. Hún segir að þegar Sheen sagði henni fréttirnar hefði hann sagt henni að taka tvær töflur til að koma í veg fyrir að hún smitaðist af sjúkdómnum.

TMZ greinir frá.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant