Leikkonan Emma Watson bað almenning um aðstoð við að finna þrjá hringi sem hún týndi í spa í London um síðustu helgi.
Emma Watson birti skilaboð á Facebook-síðu sinni þar sem hún segir að hún hafi verið í spa á Mandarian Oriental Hotel Spa í Hyde Park í London á sunnudaginn og hafi þar gleymt þremur silfurhringum.
Hringarnir hafa mikið tilfinningalegt gildi fyrir hana en einn hringanna var gjöf frá móður hennar. Móðir hennar keypti hringinn daginn eftir að Watson fæddist og gekk með hann í 18 ár en gaf Watson hann þá í 18 ára afmælisgjöf. Leikkonan segist ganga með þennan hring á hverjum degi.