Thomas Hummer aðdáandi Kendall Jenner hefur verið settur í nálgunarbann eftir að hafa sent raunveruleikastjörnunni og fyrirsætunni óteljandi ástarbréf frá því í febrúar samkvæmt E! Online.
Hummel var skyldaður til að halda sig í 90 metra fjarlægð frá Jenner næstu þrjú ár eftir að lögfræðingur hennar Shawn Holley fór með málið fyrir rétt í gær, miðvikudag. Honum var einnig bannað að eiga byssur á næstu þrjú árin.
Bréfin innihéldu móðgandi ummæli um bæði Kendall Jenner og móður hennar Kris Jenner. Hann kallaði fyrirætuna meðal annars nethóru auk þess að hann sakaði móður hennar um að borga kærasta Kendall fyrir að sofa hjá henni.