„Þörfin meiri en nokkru sinni áður“

Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóri Tjarnarbíós segir leikárið einkennast af mikilli grósku.
Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóri Tjarnarbíós segir leikárið einkennast af mikilli grósku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þörfin fyrir Tjarnarbíó er meiri en nokkru sinni áður, sem sýnir sig í því að við náum ekki að hýsa allan þann fjölda sýninga sem óskað er eftir að fái hér inni,“ segir Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Tjarnarbíós, um komandi leikár sem hefst í kvöld með frumsýningu á dansverkinu Kæra manneskja eftir Valgerði Rúnarsdóttur. Með henni á sviðinu verða Ragnar Ísleifur Bragason, Snædís Lilja Ingadóttir og Védís Kjartansdóttir. „Verkið fjallar um hringrás lífsins,“ segir Friðrik og tekur fram að markmið hópsins sé að fá áhorfendur til að sjá stöðu sína í hringrás lífsins í nýju ljósi.

„Við val á verkefnum hingað í Tjarnarbíó, sem er heimili sjálfstæðra sviðslista, horfum við til gæða þeirra. Það snýst um listrænt innihald, bakgrunn og reynslu listamannanna og hversu vel verkefnið er fjármagnað, enda skiptir okkur máli að listamenn fái greitt fyrir vinnu sína,“ segir Friðrik og bendir á að líkt og síðustu ár sé meirihluti verkefna styrktur af menningar- og menntamálaráðuneytinu í gegnum Leiklistarráð. Með Friðriki í stjórn Tjarnarbíós sitja Ása Richardsdóttir, Bergdís Júlía Jóhannsdóttir, Hannes Óli Ágústsson og Sveinn Óskar Ásbjörnsson.

„Meðal þess sem við horfum til er hvort nýmæli felist í verkefninu, þ.e. hvort það búi yfir eitthverju sem vanti í leikhúsflóruna,“ segir Friðrik og bendir á að sökum þessa skori frumsköpun ávallt hátt í verkefnavalinu. Alls verða frumsýndar tíu sýningar í Tjarnarbíói á komandi leikári. Um er að ræða danssýningar, óperur, barnasýningar og leikrit, en allar eiga sýningarnar það sammerkt að um nýsköpun er að ræða. Meðal væntanlegra sýninga eru Hans Blær eftir Eirík Örn Norðdahl, Íó eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur, Sol eftir Hilmi Jensson og Tryggva Gunnarsson og Crescendo eftir Katrínu Gunnarsdóttur.

„Hlutverk okkar er að styðja við sjálfstæðar sviðslistir og yfirleitt eru sjálfstæðir sviðslistahópar að fást við viðfangsefni samtímans og þannig með ferskasta sjónarhornið á samfélagið,“ segir Friðrik og bendir á að styrkjakerfið geri það að verkum að erfitt sé að bregðast umsvifalaust við hlutum í samtímanum í sviðsverkum. „Hugmynd sem kviknar núna getur ekki orðið að veruleika fyrr en í fyrsta lagi næsta haust, eigi verkefnið að vera sett upp með styrk frá Leiklistarráði,“ segir Friðrik og bendir á að uppfærslur Sóma þjóðar á MP5 og Könnunarleiðangri til Koi hafi verið tilraun til að skoða hversu hratt leikhúsformið geti brugðist við samfélagsumræðu líðandi stundar, en þær sýningar voru settar upp án styrkja.

Þrjú ný dansverk

Alls verða þrjú dansverk frumsýnd á árinu. „Í mars er frumsýnt Crescendo eftir Katrínu Gunnarsdóttur, sem fékk Grímu-verðlaunin sem dansari ársins á liðnu leikári fyrir sólósýninguna Shades of History. Hér leitar hún innblásturs í vinnusöngva, hvernig það að raula og syngja hefur verið notað í gegnum tíðina til að létta undir líkamlegri vinnu og stilla saman strengi,“ segir Friðrik. Dansarar verða Heba Eir Kjeld, Snædís Lilja Ingadóttir og Védís Kjartansdóttir.

Melkorku Sigríði Magnúsdóttur og Árni Rúnar Hlöðversson eru Milkywhale. Þau …
Melkorku Sigríði Magnúsdóttur og Árni Rúnar Hlöðversson eru Milkywhale. Þau setja upp Vakúm – Poppóperu um lofttæmingu í apríl 2018, en það er þriðja danssýning leikársins hjá Tjarnarbíói. Ljósmynd/Magnús Leifsson

„Um miðjan apríl er komið að Vakúm – Poppóperu um lofttæmingu eftir Melkorku Sigríði Magnúsdóttur sem einnig semur tónlistina í samstarfi við Árna Rúnar Hlöðversson undir merkjum Milkywhale,“ segir Friðrik og tekur fram að í tengslum við þá frumsýningu verði slegið upp nokkurs konar danshátíð í Tjarnarbíói þar sem öll þrjú dansverk leikársins verða sýnd eina og sömu helgina. Flytjendur í Vakúm eru auk Melkorku þau Auðunn Lúthersson, Ásgeir Helgi Magnússon, Elísa Lind Finnbogadóttir og Gunnar Ragnarsson. „Melkorka hefur í fyrri sviðsverkum leitast við að varpa nýrri sýn á samband og möguleika sönglistar og danslistar. Vakúm er þar engin undantekning,“ segir Friðrik og tekur fram að vakúmryksugur muni leika lykilhlutverk í sýningunni.

Langar í meira erlent samstarf

A Thousand Tongues nefnist gestasýning sem sýnd verður í september. Um er að ræða sambland af tónleikum og leiksýningu úr smiðju bandarísku listakonunnar Samönthu Shay sem rekur hópinn Source Material, en um flutninginn sér danska söng-, leik- og tónlistarkonan Nini Julia Bang. Sýningin var frumsýnd á Ólympíumóti í leiklist sem haldið var í pólsku borginni Wroclaw fyrr á árinu. Þetta er í annað sinn sem Source Material sýnir í Tjarnarbíói því hópurinn heimsfrumsýndi óperuna Of Light hér sumarið 2016 við gríðargóðar viðtökur,“ segir Friðrik og tekur fram að mikill fjöldi fyrirspurna berist frá erlendum sviðslistahópum sem óski eftir því að sýna hérlendis. „Okkur langar í meira erlent samstarf, en lúxusvandinn er að við önnum hreinlega ekki eftirspurninni yfir vetrartímann. Gaman væri hins vegar nýta húsið til frekara sýningarhalds yfir sumarmánuðina. Við gætum þannig boðið upp á residence-prógramm þar sem erlendir hópar gætu komið hingað, unnið og sýnt afraksturinn.“ 

Barnaleikrit nær allt leikárið

Íó nefnist nýtt barnaleikrit eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur í leikstjórn Aude Busson sem frumsýnt verður í október. „Verkið fjallar um hrafninn Íó sem leitar ásjár hjá Hafrúnu, níu ára stelpu, og biður hana að hjálpa sér við að bjarga heimkynnum sínum í undirheimum. Þetta er þroskasaga um hugrekki, vináttu, missi og leit að jafnvægi milli ljóss og myrkurs,“ segir Friðrik. Hafrúnu leikur Gríma Kristjánsdóttir, en Aldís Davíðsdóttir stjórnar brúðum sem hún hannar í samvinnu við Sigríði Sunnu Reynisdóttur sem einnig hannar leikmynd og búninga.

„Frá fyrra leikári snúa aftur í september barnasýningarnar Á eigin fótum og Tröll en í desember er svo komið að Ævintýrinu um Augastein, en svo skemmtilega vill til að bókin um Augastein verður endurútgefin í október. Í janúar frumsýnir leikhópurinn Lotta Galdrakarlinn í Oz í leikgerð Ármanns Guðmundssonar og leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Við verðum því með barnasýningar í boði um nær hverja helgi í allan vetur,“ segir Friðrik og tekur fram að ánægjulegt sé að geta hýst fyrstu innisýningu Lottu.

Leikhópurinn Lotta mun setja upp Galdrakarlinn í Oz í janúar. …
Leikhópurinn Lotta mun setja upp Galdrakarlinn í Oz í janúar. Í sumar sem leið sýndi hópurinn Ljóta andarungann í Elliðaárdalnum. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Fyrsta innisýning Lottu

„Leikhópurinn Lotta hefur getið sér gott orð fyrir útisýningar sínar sl. áratug. Þau hyggjast fara aftur í ræturnar og endurvinna Galdrakarlinn í Oz sem þau frumsýndu í Elliðaárdalnum sumarið 2008, en að þessu sinni fyrir innisvið,“ segir Friðrik. Höfundar tónlistar eru Ármann, Baldur og Snæbjörn Ragnarssynir og Eggert Hilmarsson. Leikarar eru Anna Bergljót Thorarensen, Baldur, Huld Óskarsdóttir, Rósa Ásgeirsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson.

Ástarsaga úr samtímanum

„Við erum stolt af að hýsa stóran hluta af alþjóðlegu sviðslistahátíðinni Everybody's Spectacular sem Lókal og Reykjavík Dance Festival standa fyrir í nóvember,“ segir Friðrik, en nánari upplýsingar um hátíðina verða kynntar þegar nær dregur. 

Síðasta frumsýningin þetta árið er Sol eftir Hilmi Jensson og Tryggva Gunnarsson í leikstjórn þess síðar nefnda í desember. „Leikritið byggja þeir á raunverulegri ástarsögu úr samtímanum. Þarna er verið að skoða skil og samspil tölvuheima og raunheima. Er hægt að verða ástfanginn í tölvuheimi? Og er það yfirfæranlegt yfir í raunheima? Er hægt að lifa lífinu í tölvuheimi, en ekki að fullu í raunheimum?“ segir Friðrik og bendir á að Sveinn Ólafur Lárusson, sem kenndur er við Nexus aðstoði við búningahönnun. Sigríður Soffía Níelsdóttir er hreyfihönnuður. Valdimar Jóhannsson hannar leikmynd, ljós og hljóð í samvinnu við leikstjórann og Hafliða Emil Barðason. Auk Hilmis leika í verkinu þau Salóme Rannveig Gunnarsdóttir og Kolbeinn Arinbjörnsson.

Uppistand með söng

Í desember verður þriðja árið í röð boðið upp á jólasýningu spunahópsins Svansins. „Þeir kynna spunasýninguna með þeim orðum að þetta sé alveg eins og Jólagestir Bó, nema verri söngvarar,“ segir Friðrik kíminn. Svanurinn var stofnaður fyrir fjórum árum og samanstendur af sjö spunaleikurum úr röðum Improv Ísland. Þeirra á meðal eru Guðmundur Felixson og Auðunn Lúthersson.

„Frá og með janúar verður Kári Viðarsson síðan með tónleika-uppistand að loknum sýningum undir yfirskriftinni Frjáls framlög. Hann bauð upp á þetta uppistandsprógramm líka síðasta vetur sem féll í afar góðan jarðveg,“ segir Friðrik.

Sviðslistahópurinn RaTaTam beindi sjónum sínum að heimilisofbeldi í verkinu Suss! …
Sviðslistahópurinn RaTaTam beindi sjónum sínum að heimilisofbeldi í verkinu Suss! í fyrra, en í ár er komið að fallegum hliðum ástarinnar í sýningu sem nefnist Ahhh.

Ljóðrænn kabarett um ástina

Leikhópurinn RaTaTam frumsýnir Ahhh í febrúar í leikstjórn Charlotte Bøving. „RaTaTam, sem valinn var listhópur Reykjavíkurborgar 2017, vann með skuggahliðar mannlífsins í Suss! á liðnu leikári þar sem heimilisofbeldi var til skoðunar,“ segir Friðrik og rifjar upp að sýningin hafi verið sýnd á Copenhagen Stage Festival í sumar sem leið við góðar viðtökur. „Nú hyggst hópurinn fara úr myrkrinu í ljósið og skoða ástina í fyndnum og ljóðrænum kabarett,“ segir Friðrik, en sýningin verður unnin út frá ljóðheimi Elísabetar Kristínar Jökulsdóttur. Meðal leikara eru Halldóra Rut Baldursdóttir, Hildur Magnúsdóttir, Laufey Elíasdóttir og Guðmundur Ingi Þorvaldsson.

Haturshátíð Hans Blæs

Hans Blær nefnist nýtt leikrit eftir Eirík Örn Norðdahl í leikstjórn Vignis Rafns Valþórssonar sem Óskabörn ógæfunnar frumsýnir í mars. Leikhópinn skipa Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmundsson, Jörundur Ragnarsson, Birna Rún Eiríksdóttir og Kjartan Darri Kristjánsson. „Óskabörn ógæfunnar setti upp Illsku í Borgarleikhúsinu í fyrra, en þar var um að ræða leikgerð á samnefndri skáldsögu Eiríks. Að þessu sinni skrifar Eiríkur leikritið fyrst og ætlar í framhaldinu að skrifa bók um sama efni. Líkt og í Illsku vinnur leikhópurinn áfram með popúlismann, firringu nútímans, nettröll og samfélagsmiðlana. Þau lýsa sýningunni sem „tótal hatefest“,“ segir Friðrik og bendir á að titilpersóna verksins sé gjálífiströll með egó í hjartastað.

Tíst áhorfenda í beinni

Bergmálsklefinn nefnist ný ópera sem Alþýðuóperan frumsýnir í samstarfi við Aequitas Collective í maí. Leikstjórn og textagerð er í höndum Ingunnar Láru Kristjánsdóttur, en höfundur tónlistar er Michael Betteridge. Flytjendur eru Rosie Middleton, Ísabella Leifsdóttir, Jónína Björt Gunnarsdóttir og Ívar Helgason. „Bergmálsklefinn fjallar um upplifanir fjögurra einstaklinga af Twitter. Á sviðinu verður skjár með Twitter feed í beinni þar sem áhorfendur geta tíst beint inn í atburðarásina,“ segir Friðrik og tekur fram að um áhugaverða tilraun verði að ræða.

Karlmenn í nútímanum

Them nefnist síðasta frumsýning leikársins sem verður í maí, en hún kemur úr smiðju Spindrift theatre. Þar er um að ræða sviðslistaverk í leikstjórn Önnu Korolainen, sem leikur ásamt Marjo Lahti, Bergdísi Júlíu Jóhannsdóttur, og Tinnu Þorvalds Önnudóttur, en dramatúrg verksins er Minerva Pietilä. „Konurnar fjórar leggja upp í rannsóknarferðalag til að öðlast skilning á því hvað það er að vera karlmaður í nútímasamfélagi,“ segir Friðrik og bendir á að handritið byggist á tugum viðtala sem aðstandendur hafa tekið við karlmenn á Vesturlöndum.

Mikil gróska í Tjarnarbíói

Þess má að lokum geta að nokkrar sýningar frá fyrra leikári snúa aftur nú á haustmánuðum. Í síðustu viku hófust að nýju sýningar á Í samhengi við stjörnurnar eftir Nick Payne í leikstjórn Árna Kristjánssonar. Í september hefjast sýningar á Fyrirlestur um eitthvað fallegt, úr smiðju SmartíLab-hópsins og leikstjórn Söru Martí; Sóleyju Rós ræstitækni eftir Maríu Reyndal og Sólveigu Guðmundsdóttur í leikstjórn Maríu og danssýningunni Fubar eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur.

Sólveig Guðmunsdóttir hlaut Grímuna fyrir bestan leik í aðalhlutverki fyrir …
Sólveig Guðmunsdóttir hlaut Grímuna fyrir bestan leik í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Sóleyju Rós og einnig Menningarverðlaun DV fyrir leik sinn í Sóleyju Rós ræstitækni og Illsku. Sóley Rós verður tekin aftur til sýningar í Tjarnarbíói nú í september.

„Þessar sýningar, auk barnasýninganna Á eigin fótum úr smiðju Miðnættis og Lost Watch Theatre í leikstjórn Agnesar Wild, Tröll úr smiðju Handbendis brúðuleikhúss undir stjórn Gretu Clough og Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson í samvinnu við Kolbrúnu Halldórsdóttur og Helgu Arnalds eru allt sýningar sem hafa hætt fyrir fullu húsi og eiga fullt inni,“ segir Friðrik og tekur fram að sérstaklega ánægjulegt sé að geta boðið Grímu-verðlaunasýninguna Sóleyju Rós aftur á svið, en sýningin var verðlaunuð fyrir besta leikrit liðins leikárs og Sólveig Guðmundsdóttir var valin leikkona ársins í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á titilhlutverkinu. Sólveig hlaut fyrir sama hlutverk og leik sinn í Illsku einnig Menningar0verðlaun DV 2016.

„Leikárið verður þannig mjög fjölbreytt og einkennist af mikilli grósku. Tvö verkanna fjalla um stafrænt líf andspænis lífi í raunheimum, þ.e. Sol og Bergmálsklefinn. Kynjahlutverkin eru gegnumgangandi þema í Ahhh, Them, Hans Blæ og Bergmálsklefanum. Barnaleikhúsið og dansinn verða fyrirferðarmikil á leikárinu. Þetta eru þemu og viðfangsefni sem birtast okkur eftir að dagskráin er sett saman.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson