Komin með NBA-stjörnu upp á arminn

Er Kendall Jenner með sama smekk á karlmönnum og stóru …
Er Kendall Jenner með sama smekk á karlmönnum og stóru systur hennar? mbl.is/AFP

Fyrirsætan og raunveruleikastjarnan Kendall Jenner er sögð vera að slá sér upp með körfuboltakappanum Blake Griffin. 

Jenner og Griffin hafa sést úti með vinum meðal annars á stefnumóti með fyrirsætunni Hailey Baldwin og kærasta hennar. Heimildarmaður Page Six segir síðan að skötuhjúin hafa eytt öllum sunnudeginum saman. 

Griffin er 28 ára og leikur körfubolta með NBA-liðinu Los Angeles Clippers. Eldri systur Jenner hafa einnig átt í samböndum við körfuboltamenn. Kim Kardashian var gift Kris Humphries körfuboltamanni. Khloé Kardashian var gift körfuboltamanninum Lamar Odom en er nú í sambandi með körfuboltamanninum Tristan Thompson. 

Jenner átti lengi vel í sambandi við rapparann A$AP Rocky en ástarblossinn á milli þeirra er sagður hafa kólnað í sumar þar sem þau eru bæði mjög upptekin og hafa lítið getað eytt tíma saman. 

Blake Griffin.
Blake Griffin. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant