Hvar er giftingahringurinn?

Fótboltakappinn Wayne Rooney og eiginkona hans Coleen standa í ströngu …
Fótboltakappinn Wayne Rooney og eiginkona hans Coleen standa í ströngu um þessar mundir. Skjáskot Instagram / Coleen Roney

Coleen Rooney virðist ekki eiga sjö dagana sæla um þessar mundir, en eiginmaður hennar var á dögunum handtekinn fyrir ölvunarakstur. Þar með er ekki öll sagan sögð því með honum í för var hin 29 ára gamla Laura Simpson, sem heldur því fram að Rooney hafi gert sér dælt við hana.

Á meðan ósköpunum stóð var Coleen stödd í fríi á Mallorca með sonum sínum þremur. Fríið var þó stutt í annan endann, enda héldu Coleen og börnin heim eftir handtöku Rooneys. Hún virðist síður en svo sátt við framferði eiginmannsins, en athygli hefur vakið að hún hefur ekki gengið með giftingarhring sinn síðustu daga eins og fram kemur í frétt Mirror.

Þá er fótboltakappinn sagður hafa sett konu sinni úrslitakosti, en hann er hreint ekki hrifinn af því hversu oft hún bregður undir sig betri fætinum. Hann er einnig sagður hafa skipað spúsu sinni að hætta sífelldu flandri, í skiptum fyrir það að hann dragi úr drykkjunni.

Coleen er þó ekki af baki dottin, en hún er sögð vera að skipuleggja annað frí. Að þessu sinni til Dubai.

Frétt mbl.is: Sögð ætla í ellefta fríið á árinu

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant