Hafa skoðað tökustaði á Íslandi

Jennifer Lawrence er ein skærasta stjarna Hollywood um þessar mundir.
Jennifer Lawrence er ein skærasta stjarna Hollywood um þessar mundir. AFP

Aðstandendur kvikmyndar eftir bókinni Burial Rites, Náðarstund, sem er söguleg skáldsaga byggð á síðustu aftökunni sem fram fór á Íslandi, hafa nokkrum sinnum skoðað mögulega tökustaði fyrir myndina í Húnaþingi vestra. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Samkvæmt heimildum RÚV hefur hópurinn m.a. skoðað tökustaði í Vatnsdalnum og Vatnsnesinu þar sem málið átti sér stað á sínum tíma. 

Í gær sagði tímaritið Variety frá því að staðfest sé að Jennifer Lawrence, ein skærasta stjarna Hollywood um þessar mundir, muni fara með hlutverk Agnesar Magnúsdóttur í myndinni. Myndinni verður leikstýrt af Luca Gua­dagn­ino, sem hef­ur verið orðaður við Óskar­sverðlaun­in fyr­ir mynd­ina Call Me by Your Name.

Burial Rites mun byggj­ast á sam­nefndri bók Hönnuh Kent frá 2013, þar sem fjallað er um ör­lög Agnes­ar sem var háls­höggv­in 12. janú­ar 1830 í síðustu af­tök­unni á Íslandi. Mun söguþráður mynd­ar­inn­ar snú­ast um þann tíma er líður frá glæpn­um og þar til dauðadóm­ur­inn er staðfest­ur, er Agnes mynd­ar „til­finn­inga­leg og róm­an­tísk tengsl“ og velt­ir fyr­ir sér glæp­un­um sem hún er sökuð um, sam­kvæmt Variety.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson