Breskir fjölmiðlar hafa veitt því athygli hversu útitekið kóngafólk þess er eftir samkomubann. Fregnir herma að hertogahjónin Katrín og Vilhjálmur hafi verið dugleg að verja tíma sínum utandyra með börnum sínum.
Karl Bretaprins er einnig annálaður náttúruunnandi og áhugamaður um garðyrkju og því mikið utandyra í frítíma sínum. Þá hafa margir veitt því eftirtekt hversu upplýst hár Beatrice prinsessu er orðið vegna sólarinnar.