Maður nokkur í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum er ekki feigur. Hann sat í rólegheitum í sínu fasta gluggasæti í uppáhalds grillsjoppunni sinni þegar bíll kom skyndilega á fullri ferð gegnum vegginn og lenti á manninum.
Á mynd úr öryggismyndavél sést þegar maðurinn setur sallarólegur á sig húfuna að nýju eftir lætin en hann slapp með skrámur.