Vegfarandi náði myndskeiði af því er svín stökk af palli vörubíls sem var að flytja það, líklega í sláturhúsið. Atvikið er sagt hafa átti sér stað í Suður-Ameríku.
Á myndskeiðinu má sjá að svínið vankast nokkuð við hátt fallið og því miður greina fjölmiðlar sem fjallað hafa um málið ekki frá því hver örlög þessa hugrakka svíns urðu.
Á myndskeiðinu má sjá svínið reka upp hausinn og fara svo að brölta um á pallinum og loks svífa út í frelsið.