Fangabúningarnir orðnir of töff

Vinsældir sjónvarpsþáttarins Orange is the new black eru meðal ástæðna …
Vinsældir sjónvarpsþáttarins Orange is the new black eru meðal ástæðna þess að hætt verður að nota appelsínugula fangabúninga í Saginaw fangelsinu.

Saginaw-fangelsið í Michigan í Bandaríkjunum ætlar að snúa aftur til upprunans og láta fanga klæðast hinum klassísku röndóttu búningum í svarthvítu, í stað appelsínugula gallans sem tók við fyrir margt löngu. Ástæðan er vinsældir sjónvarpsþáttanna „Orange is the new black“.

Svo virðist sem titilli þáttanna hafi haft þau áhrif að appelsínugulur sé sannarlega orðinn „hinn nýi svarti“ litur tískunnar, því nýlega mætti kviðdómari til réttarhalda alklæddur appelsínugulu frá toppi til táar.

„Þegar skilin verða óskýr milli menningarinnar utan fangelsis og innan þess þá þarf ég að tryggja að eitthvað sé gert til að skerpa skilin,“ hefur Washington Post eftir sýslumanninum William Federspiel.

Saginaw-fangelsið ætlar því að dusta rykið af stílnum sem var allsráðandi í fangelsum landsins á 19. öld. Við upphaf 20. aldar var röndótti búningurinn smám saman lagður af í Bandaríkjunum, vegna þess að hann þótti orðinn of nátengdur glæpaklíkum. Þannig gengur tískan í hringi, jafnvel í fangelsum. New York-ríki skipti þeim út árið 1904, en síðasta ríkið til að hætta notkun þess röndótta var Norður-Karólína, árið 1958.

Appelsínuguli gallinn var ekki tekinn í notkun í Bandaríkjunum fyrr en á 8. áratugnum, til að byrja með fyrst og fremst í gæsluvarðhaldsfangelsum, samkvæmt umfjöllun á vefsíðunni Slate. Þótt sá appelsínuguli sjáist gjarnan á sjónvarpsskjánum þá er hann alls ekki allsráðandi í bandarískum fangelsum, en fangar eru oft látnir klæðast honum sem auðkenni þegar þeir eru á almannafæri, s.s. í fangaflutningum og réttarhöldum. Á öllum frægustu myndunum frá Guantanamo Bay-fangelsinu eru grunaðir hryðjuverkamenn þar t.d. í appelsínugulu, en í reynd klæðast þeir oftast hvítum búningi, að sögn stjórnvalda.

Sérriffinn Federspiel segir að það hefði verið auðveld ákvörðun að leggja appelsínugula gallanum. „Það sparar peninga og aðskilur fangana frá því sem er vinsælt í menningunni utan veggjanna. Það er ekki töff að vera fangi í Saginaw.“

Hin klassíski röndótti fangabúningur hefur ekki verið í notkun í …
Hin klassíski röndótti fangabúningur hefur ekki verið í notkun í áratugi í Bandaríkjunum, en hann hefur raunar einnig sést í kvikmyndum m.a. O Brother Where Art Thou?
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant