Sex bílar lentu í árekstri í gær á hraðbraut nálægt Moss í Noregi. Átta manns, þar af fjögur börn, voru flutt á sjúkrahús en enginn mun hafa slasast alvarlega. Áreksturinn varð eftir að eldur kom upp í 45 ára gamalli Volvo-rútu og lagði svo mikinn reyk frá bílnum, að aðrir bílstjórar á veginum sáu ekki handaskil og lentu í árekstri við aðra bíla.