John Edwards, sem sækist eftir að verða forsetaframbjóðandi demókrata, sparar ekki við sig þegar útlitið er annars vegar, að því er fram kemur í opinberum gögnum sem kosninganefnd hans hefur birt. Þannig fór Edwards tvisvar í klippingu hjá frægum stílista í Beverly Hills, Joseph Torrenueva, og í bæði skiptin var reikningurinn upp á 400 dollara, eða sem svarar rúmum 26.000 krónum, og greiddur úr kosningasjóði Edwards.
Torrenueva segir Edwards lengi hafa verið viðskiptavin sinn. Ástæðan fyrir því hvað klippingarnar voru dýrar mun aðallega vera sú, að Edwards fór ekki á stofuna til Torrenueva á Rodeo Drive heldur kom hárskerinn heim til Edwards.