Níu bandarískir hermenn féllu í Írak í dag

Bandaríkjaher segir, að 9 bandarískir hermenn hafi látið lífið í Írak í dag. Fimm féllu í bardaga við uppreisnarmenn í Anbarhéraði vestur af höfuðborginni Bagdad og þrír í árásum uppreisnarmanna suður af borginni. Hafa þá 99 bandarískir hermenn fallið í Írak í apríl og 3346 frá því innrásin hófst í landið í mars árið 2003.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka