Breskur afbrotafræðingur, sem vinnur að rannsókn á hvarfi bresku stúlkunnar Madeleine McCann á Praia de Luz í Portúgal, segir ekki rétt að ræningi hennar hafi brotið upp glugga til að komast inn í íbúðina þar sem hún svaf ásamt systkinum sínum heldur hafi foreldrar hennar skilið eftir opið. Fram hefur komið að þau hafi setið að snæðingi á veitingastað í um fimmtíu metra fjarlægð frá íbúðinni er stúlkan hvarf og skipst á um að fara í íbúðina til að gæta að börnunum. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.
Þá segir afbrotafræðingurinn í viðtali við breska blaðið Sunday Mirror að foreldrarnir hafi talið sig hafa útsýni yfir íbúðina en ekki áttað sig á því að hversu mjög tré skyggði á útsýni þeirra.
Einnig er greint frá því á fréttavef Jyllands-Posten að sporhundar hafi gefið til kynna að þeir hefðu fundið lykt að stúlkunni í kjörbúð í nágrenni sumarleyfisíbúðarinnar, sem foreldrar hennar hafi aldrei farið með hana í.