Mannræningjarnir segja Hill heila á húfi

Mannræningjarnir sem rændu þriggja ára gamalli breskri stúlku, Margaret Hill, í Nígeríu fyrr í dag segja að hún sé heil á húfi. Hringdu mannræningjarnir í föður hennar en lögregla hefur ekki upplýsingar um hvort þeir hafi krafist lausnargjalds. Hill var rænt í borginni Port Harcourt í suðurhluta Nígeríu en faðir hennar starfar þar hjá olíufyrirtæki.

Hill var rænt úr bifreið sem hún var farþegi í á leið til skóla. Mannrán eru tíð í Nígeríu en ekki er algengt að börnum sé rænt þar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert