Fjórir létust er ný brú hrundi í Pakistan

Pervez Musharraf vígði brúna fyrir aðeins tveimur mánuðum
Pervez Musharraf vígði brúna fyrir aðeins tveimur mánuðum Reuters

Í það minnsta fjórir létust í dag og tólf slösuðust þegar brú hrundi í borginni Karachi í Pakistan í dag. Óttast er að fleiri séu látnir, en björgunarmenn vinna nú að því að leita í rústunum. Pervez Musharraf, forseti Pakistans, vígði brúnna fyrir tveimur mánuðum. En hún er sögð hafa hrunið með miklum látum og var talsverð umferð á brúnni þegar hrunið varð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert