Tíu slösuðust, þar af einn alvarlega, í lestarslysi nærri bænum Strakonice í Tékklandi í suðvesturhluta Tékklands í morgun þegar tvæt lestir rákust saman. Lestarstjórinn viðurkenndi eftir slysið að hann hafi haldið að í dag væri sunnudagur og hafi því ekið á teinunum, sem eru einfaldir, á annarri áætlun en til stóð.