Yoko Ono lýsir stuðningi við Búddamunka í Búrma

Yoko Ono.
Yoko Ono. Reuters

Yoko Ono, ekkja Johns Lennons, hefur sent frá sér yfirlýsingu og lýsir yfir stuðningi við Búddamunka, sem stóðu fyrir mótmælum gegn herforingjastjórninni í Búrma.

Yfirlýsing Ono birtist á netsíðu, sem sett hefur verið á stofn til stuðnings munkanna. Hafa yfir 300 þúsund manns skráð sig á síðuna á undanförnum vikum.

Ono er væntanleg hingað til lands um helgina til að afhjúpa friðarsúlu í Viðey í minningu Lennons.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka