Frekari tafir í Bretlandi sökum veðurs

Lögreglan í Lincolnskíri hefur ekki farið varhluta af snjókomunni.
Lögreglan í Lincolnskíri hefur ekki farið varhluta af snjókomunni. Reuters

Vegfarendur í Bretlandi mega búast við frekari töfum í dag sökum fannfergis. Þá eru mörg hundruð skólar enn lokaðir í kjölfar mestu snjókomu í landinu í 18 ár. Það snjóaði mest á suðausturhluta Englands með tilheyrandi umferðartöfum. Flugumferð raskaðist sömuleiðis.

Búist er við því að hríðin muni færast norður. Snjókomu er spáð á norðausturhluta Englands og austurhluta Skotlands. Breska veðurstofan hefur sent frá sér veðurviðvörun sem nær til alls landsins.

Þá er varað við mikilli hálku á suðurhlutanum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka