Myndband sem sagt er sýna Ashley Biden, dóttur John Biden varaforseta Bandaríkjanna, neyta kókaíns er nú til sölu. Hefur myndbandið m.a. verið boðið blaðinu The New York Post.
Það er lögmaðurinn Thomas Dunlap, sem býður myndbandið til sölu fyrir hönd ónefnds vinar Biden. Staðhæfir hann að myndbandið sé tekið með vitneskju stúlkunnar og að skjólstæðingur sinn hafi oftar en einu sinni verið viðstaddur er hún neytti fíkniefna.
Málið þykir hið vandræðalegasta fyrir Biden sem hefur verið harður baráttumaður gegn fíkniefnaneyslu og m.a. barist fyrir harðari refsigum vegna fíkniefnabrota.
Biden, sem er 27 ára félagsráðgjafi, tók virkan þátt í kosningabaráttu föður síns á síðasta ári.