Danir og Svíar í hár saman

Fredrik Reinfeldt. forsætisráðherra Svía. stækka

Fredrik Reinfeldt. forsætisráðherra Svía. mynd/norden.org

Danskir og sænskir stjórnmálaleiðtogar eru komnir í hár saman eftir að talsmenn dönsku stjórnarflokkanna lýstu þeirri skoðun, að Evrópuráðið þyrfti að senda kosningaeftirlitsmenn til Svíþjóðar vegna þingkosninganna sem þar fara fram síðar í september.

Ástæðan  er sú, að sænska sjónvarpsstöðin TV4 neitaði að sýna kosningaauglýsingu frá Sænsku demókrötunum, sem eru yst á hægrivæng sænskra stjórnmála. Þá hefur sænska ríkissjónvarpið ákveðið að leyfa talsmanni flokksins ekki að taka þátt í lokaumræðum stjórnmálaleiðtoganna fyrir kosningarnar. 

Michael Aastrup Jensen, talsmaður danska flokksins Venstre í utanríkismálum, sagði við Jyllands-Posten í gær, að hann ætlaði að taka málið upp á fundi Evrópuráðsins í október. Naser Khader, talsmaður Íhaldsflokksins í utanríkismálum, sagði að Svíar stunduðu ritskoðun og Pia Kjærsgaard, leiðtogi Danska þjóðarflokksins, sagði að staða þessara mála væri verri í Svíþjóð en í löndum í Austur-Evrópu.

Sænskir stjórnmálaleiðtogar taka þessari gagnrýni fálega. Á vef Berlingske Tidende í dag er haft eftir Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svía, að erfitt sé að skilja gagnrýni Dana. Hann segist ekki bera ábyrgð á ákvörðun TV4 og hafi ekki forsendur til að tjá sig um hana en næg tækifæri séu fyrir flokka og frambjóðendur að koma sínum sjónarmiðum á framfæri í kosningabaráttu.

Mona Salin, forsætisráðherraefni rauðgræna bandalagsins í Svíþjóð, segir að sænskar kosningar séu fullkomlega lýðræðislegar og hún sé stolt af því að til séu lönd, stjórnmálamenn og ríkisstjórnir, sem geti gert greinarmun á málfrelsi og hatri á tilteknum þjóðfélagshópum. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Dómararnir í málinu

Barnaníðingur dæmdur í 18 ára fangelsi

11:48 Tæplega þrítugur karlmaður, Robert M, var dæmdur í átján ára fangelsi í Hollandi í dag fyrir gróft og ítrekað barnaníð. Beitti hann yfir sextíu börn kynferðislegu ofbeldi og voru yngstu fórnarlömb hans einungis nokkurra mánaða gömul. Meira »
Aung San Suu Kyi

Tekur við verðlaununum 16. júní

11:25 Þingmaðurinn Aung San Suu Kyi mun taka við friðarverðlaunum Nóbels í Ósló þann 16. júní nk. samkvæmt upplýsingum frá talskonu nóbelsnefndarinnar. Suu Kyi fékk verðlaunin árið 1991 en fær nú fyrst tök á því að taka við verðlaununum. Meira »

Bandaríkjamenn og Pakistanar deila í Chicago

Leon E. Panetta, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Barack Obama Bandaríkjaforseti ásamt Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóra NATO.
11:03 Óttast er að deila bandarískra og pakistanskra stjórnvalda um birgðaleiðir í Afganistan muni varpa skugga á ráðstefnu Atlantshafsbandalagsins (NATO) sem fer nú fram í Chicaco í Bandaríkjunum. Meira »

Áfram gert ráð fyrir aðild Grikkja

Unnið er að byggingu nýrra höfuðstöðva Seðlabanka Evrópu í Frankfurt
10:47 Seðlabanki Evrópu gerir ráð fyrir því að Grikkland verði áfram hluti af evru-svæðinu og samkvæmt upplýsingum frá bankanum er ekkert annað í stöðunni. Meira »

Þrír fórust á Everest

Frá Mount Everest.
09:05 Í dag var tilkynnt um að þrír fjallgöngumenn hefðu látið lífið á leið sinni niður Mount Everest og hafa nú fimm látist á fjallinu á þessu ári. Meira »

Bandamenn Pútín í stjórn

Vladímír Pútín, Rússlandsforseti.
10:51 Nýja ríkisstjórn í Rússlandi skipa bandamenn Pútín forseta, en jafnframt héldu nokkrir ráðherrar úr stjórn Dmitry Medvedev, fyrrverandi forseta og núverandi forsætisráðherra, sæti sínu í stjórn. Meira »

Sjálfsmorðsárás í Jemen

Frá Jemen.
09:37 Maður í herbúningi sprengdi sjálfan sig í loft upp er hann stóð í miðri herfylkingu í Sanaa í Jemen í dag. Að minnsta kosti 50 létu lífið og margir særðust. Meira »

Strauss-Kahn sakaður um hópnauðgun

Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu og ítrekað ...
08:27 Franskir saksóknarar hófu í dag undirbúningsrannsókn á ásökunum á hendur Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, um að hafa tekið þátt í hópnauðgun í Bandaríkjunum. Meira »

Átök í Líbanon

Hermaður stendur vörð um bifreiðina, sem klerkurinn ferðaðst í.
07:06 Tveir féllu í bardögum stuðningsmanna og andstæðinga Bashar al-Assad, Sýrlandsforseta, í Beirút, höfuðborg Líbanons, í nótt.  Meira »

Þjóðernissinni með flest atkvæði myndskeið

Þjóðernissinni með flest atkvæði
Í gær, 19:17 Þjóðernissinninn Tomislav Nikolic verður væntanlega næsti forseti Serbíu ef marka má útgönguspár.   Meira »

Serbía stefnir áfram á ESB-aðild myndskeið

Serbía stefnir áfram á ESB-aðild
Í gær, 20:28 Tomislav Nikolic, nýkjörinn forseti Serbíu, heitir því að engin breyting verði á umsóknarferli landsins um aðild að Evrópusambandinu. Meira »

Frakkar taki þátt með öðrum hætti myndskeið

Frakkar taki þátt með öðrum hætti
Í gær, 18:29 Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, Anders Fogh Rasmussen, gerði ekki mikið úr áhrifum þess að Frakkar dragi herlið sitt heim frá Afganistan fyrir lok árs. Segir hann að Frakkar muni taka þátt með öðrum hætti. Meira »

Monti flýtir heimför

Klukkuturninn í miðbæ Finale Emila eyðilagðist í skjálftunum í nótt.
Í gær, 16:39 Forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, hefur ákveðið að halda heim til Ítalíu frá Bandaríkjunum fyrr en til stóð. Er það vegna jarðskjálftanna í heimalandinu í nótt og sprengjutilræðisins í Brindisi í gær. Meira »

Seldu upplýsingar um viðskiptavini

Í gær, 15:48 Saksóknarar í Sviss hafa ákært starfsmenn þriggja farsímafyrirtækja fyrir að hafa selt upplýsingar um eigendur símanúmera fyrirtækjanna. Meira »

Lockerbie-sprengjumaðurinn dáinn

Abdelbaset Ali Mohmet al-Megrahi í fylgd lögreglu árið 1992.
Í gær, 13:08 Hryðjuverkamaðurinn Abdelbaset al-Megrahi, eini maðurinn sem sakfelldur var vegna sprengjuárásarinnar yfir Lockerbie í Skotlandi árið 1988 sem leiddi til dauða 270 manna, lést í dag á heimili sínu í Líbíu. Meira »

Minnast fórnarlambanna

David Cameron og forsætisráðherra Rússlands, Dmitrí Medvedev
Í gær, 16:22 Forsætisráðherra Bretlands, David Cameron, segir að í dag eigi fólk að minnast þeirra 270 sem létust er þota Pan Am flugfélagsins var sprengd yfir Lockerbie í Skotlandi í desember 1988. Meira »

Kjósa einnig um evruaðild

Wolfgang Schaeuble
Í gær, 14:53 Grikkir munu ekki einungis kjósa sér nýtt þing hinn 17. júní heldur munu þeir einnig kjósa um hvort þeir vilji vera áfram innan evrusvæðisins, segir fjármálaráðherra Þýskalands, Wolfgang Schaeuble í viðtali við gríska blaðið Kathimerini í dag. Meira »

Sex eru látnir eftir skjálftana

Ráðhúsið í þorpinu Sant'Agostino skemmdist í skjálftunum.
Í gær, 12:35 Sex eru látnir eftir jarðskjálftahrinuna sem skók norðurhluta Ítalíu í nótt. Umtalsvert tjón varð á menningarverðmætum auk þess sem bæði heimili og verksmiðjur hrundu og skemmdir urðu á kirkjuturnum. Tugir manna slösuðust í stærsta skjálftanum, sem mældist 6,0 stig og reið yfir um miðja nótt. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sky plus afruglari til sölu
Sky plus afruglari til sölu. Hann er með upptökumöguleika. Hægt að taka upp þætt...
Ssang Yong Korando
Eldsneyti / vél: - bensín, 2.295 cc. 140 hö. 1.825 kg. Drif / Stýrisbúnaður: S...
Mitsubishi Galant (ES
Mitsubishi Galant (ES) 2001 árgerð Ekinn ca 11000 mílur (176þús km) Slagrými ...
Íbúð til leigu í Garðinum
4 herbergja Íbúð til leigu í Garðinum á Suðurnesjum. Laus 1. júlí. Langtímaleiga...
 
Sölumaður / skjalagerð
Sérfræðistörf
Fasteignasala Rótgróin og traust fasteig...
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar reykjavíkur

MENNTUNARSJÓÐUR Mæðrastyrksnefndar Re...
Reykjanesbær sjóvarnir

Útboð Reykjanesbær, sjóvarnir 2012...
Teacher, nautical education
Grunn-/framhaldsskóla
Lofoten Maritime College Norway POSI...