Eignaðist 10 börn með dóttur sinni

Lögreglan í Argentínu hefur handtekið 62 ára gamlan karlmann sem nauðgaði sinni eigin dóttur og eignaðist með henni yfir 10 börn. Brotin stóðu yfir í rúm 30 ár og eru réttarhöld hafin í málinu.

Maðurinn hefur neitað sök. Að sögn dómara staðfesta DNA-próf að hann sé faðirinn.

Brot gegn dótturinni hófust á heimili þeirra í þorpinu Nicanor Molinas, sem er 600 km norður af höfuðborginni Buenos Aires, þegar hún var aðeins 13 ára. Hún er 43 ára gömul í dag.

Margir eru slegnir óhuga vegna þessara frétta, en þetta er annað málið af svipuðum toga sem kemur upp í landinu á jafnmörgum árum.

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka