Kínverska hagkerfið er að ofhitna og þurfa stjórnvöld annað hvort að draga úr aðgengi að lánsfé eða horfa fram á verðbólgu með atvinnuleysi og stöðnun, með tilheyrandi félagslegum óróa. Þetta er mat Ambrose Evans-Pritchard, viðskiptaritstjóra Daily Telegraph, sem spáir hamfaraári í efnahagsmálum.
Viðskiptaritstjórinn er ekki einn um þessa skoðun því Mark Hart, stjórnandi bandarísks vogunarsjóðs, hefur stofnað sjóð þar sem fjárfestum er boðið að veðja á að lánsfjárbólan í Kína springi með tilþrifum. Fjallað var um þær hugmyndir í sama blaði nýlega og vísað til þess að Hart hafi áður grætt á skuldavanda Evrópu.
Eins og rakið hefur verið í Morgunblaðinu hefur víða borið á gífurlegri offjárfestingu í Kína, ásamt því sem fasteignaverð hefur hækkað langt umfram kaupgetu almennings til lengri tíma litið.
Kínverjar lengja í hengingaról Portúgala
Evans-Pritchard bendir á að áhugi Kínverja á skuldabréfum spænska og portúgalska ríkisins geri það að verkum að fjárfestar keppi sig við að losa sig við skuldabréf.
Þetta vegi á móti jákvæðum áhrifum af áhuga Kínverja á vaxtastigið og hafi því aftur haft þær afleiðingar að Portúgal og Spánn hafi ekki horft fram á vaxtalækkun á skuldabréfunum, en þá er átt við áhrif eftirspurnar eftir bréfunum á vextina.
Spáir Evans-Pritchard því að í mars muni portúgalska ríkið horfa fram á yfir 7% vexti á skuldabréfum, þröskuldur sem muni neyða Portúgala til að þiggja björgunarpakka frá Evrópusambandinu. Um líkt leyti muni Evrópusambandið kaupa skuldabréf af Spánverjum til að varna þeim sömu örlögum, með takmörkuðum áhuga Evrópska seðlabankans.