Múslímar brenna kirkjur

Frá Indónesíu
Frá Indónesíu Reuters

Hópur múslíma brenndi kirkjur kristinna manna og átti í átökum við lögreglu í Indónesíu í morgun. Þeir kröfðust dauðarefsingu yfir kristnum manni, sem hefur verið sakfelldur fyrir að óvirða íslamstrú.

Mikil ólga hefur verið meðal múslíma í landinu, en fyrir tveimur dögum hengdi hópur múslíma þrjá meðlimi lítils múslímasöfnuðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert