Áður óþekktur indíánaættflokkur finnst í Brasilíu

Morgunblaðið kjon@mbl.is
Fundist hefur áður óþekktur indíánaættflokkur í Javari-dal í Brasilíu og er talið að alls sé um 200 manns að ræða. Loftmyndir sýna maís- og bananaekrur á svæðinu, að sögn Dagens Nyheter.

Byggðin er skammt frá landamærunum að Perú en þar fundust fjórir bæir í flugleiðangri í apríl. Á heimasíðu Funais, samtaka indíána, segir að líklega tali fólkið mál sem skylt sé indíánatungunni Panóa.

Brasilísk stjórnvöld hafa bannað almenningi öll samskipti við þessa einangruðu ættflokka af ótta við að þeir geti smitast af sjúkdómum sem þeir hafi ekki áður kynnst.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Bashar al-Assad forseti Sýrlands.

Assad sakar Vesturlönd um lygar

Í gær, 22:22 Sýrland er að tapa upplýsingastríðinu við Vesturlönd, að sögn hins umdeilda forseta landsins, Bashar al-Assad. „Þeir sneru á okkur strax í upphafi, bjuggu til sögur," sagði Assad í viðtali við rússnesku sjónvarpsstöðina Rossiya 24 í kvöld. Meira »
Forsætisráðherra Frakklands, Jean-Marc Ayrault kynnti nýja ríkisstjórn landsins í dag

Jafnrétti í nýrri ríkisstjórn

Í gær, 18:47 Jafnt kynjahlutfall er í nýrri ríkisstjórn Frakklands, 17 konur og 17 karlar. Þrátt fyrir það eru karlar í mörgum af helstu ráðuneytunum. Formaður Sósíalistaflokksins, Martine Aubry, hafnaði ráðherrasæti þrátt fyrir að hafa verið boðið veigamikið ráðuneyti, samkvæmt frétt BBC. Meira »

Milljarður ferðamanna í fyrsta skipti

Ferðamenn sóla sig á Maldíveyjum.
Í gær, 20:28 Búast má við því að yfir milljarður manna ferðist út fyrir heimaland sitt á þessu ári og hafa aldrei fleiri verið á faraldsfæti. Stofnunin World Tourism Organization segir þetta gefa ríkisstjórnum tækifæri til að skapa störf á erfiðum tímum. Meira »

Fjölskylda Trayvons Martins ósátt við skýrslu

George Zimmerman.
Í gær, 16:20 Samkvæmt læknaskýrslu frá heimilislækni George Zimmerman, sem hefur verið ákærður fyrir að myrða Trayvon Martin, var Zimmerman með brákað nef, tvö glóðaraugu og tvo djúpa skurði á hnakkanum daginn eftir að unglingsdrengurinn Martin lést. Meira »

Hljóðriti rússnesku flugvélarinnar fundinn

Frá slysstað.
Í gær, 15:28 Stjórnvöld í Indónesíu segja að hluti ferðrita rússnesku farþegaflugvélarinnar, sem brotlenti í fjallshlíð í Indónesíu í síðustu viku, sé fundinn. Allir um borð, alls 45 manns, létust. Vélin var í sýningarferð um Asíu en hvarf af ratsjá um 50 mínútum eftir að tekið var á loft frá Jakarta. Meira »

Gagnrýnir ESB og Angelu Merkel

Alexis Tsipras vill semja á ný um þau skilyrði sem Grikkir verða að gangast undir ...
Í gær, 17:02 Alexis Tsipras, leiðtogi gríska vinstriflokksins Syriza, sakar Evrópusambandið og Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, um að vera í pókerspili með líf Evrópubúa með því krefjast aðhaldsaðgerða í ríkisfjármálum ríkja í álfunni. Meira »

Manga-þýðandi dæmdur fyrir barnaklám

Persóna í manga-myndasögu
Í gær, 15:36 Sænskur þýðandi japanskra manga- myndasagna, Simon Lundström, hefur áfrýjað til hæstaréttar Svíþjóðar dómum undirréttar þar sem hann var dæmdur fyrir vörslu barnakláms. Hófst málflutningur í málinu fyrir hæstarétti í dag. Meira »

Ákærðir fyrir smygl á fólki

Stephen Harper forsætisráðherra Kanada.
Í gær, 14:59 Tveir menn til viðbótar hafa verið ákærðir í umfangsmiklu máli í Kanada þar sem mörg hundruð Tamílum var smyglað til landsins með flutningaskipi. Meira »

Ólík markmið hafa ekki áhrif á orkuviðræður við Rússa

Frá Rússlandi.
Í gær, 14:48 Rússar vilja aðallega spara orku af efnahagsástæðum. Norðurlönd og ESB vilja spara orku til að draga úr álagi á umhverfið. Þrátt fyrir ólík markmið gengur samstarf Norðurlanda og Rússa um orkusparandi lausnir vel. Meira »

Faldi sig undir líki til að lifa af

Anders Behring Breivik.
Í gær, 13:45 „Þetta voru skelfilegar sekúndur,“ sagði Ingvild Leren Stensrud, sem lifði af skotárásina í Útey 22. júlí í fyrra, við réttarhöldin yfir Anders Behring Breivik í dag. Hún faldi sig undir líki á meðan hún beið þess að Breivik yfirgæfi kaffihúsið í eynni. Alls létust 69 í Útey. Meira »

Nafnið hæfir starfinu vel

Panagiotis Pikrammenos
Í gær, 14:21 Nýr forsætisráðherra Grikklands, Panagiotis Pikrammenos, gerir góðlátlegt grín að fornafni sínu í viðtali við AFP-fréttastofuna en gríska orðið Panagiotis þýðir fullur gremju. Segir hann það hæfa vel nýja starfinu. Meira »

Áfram heldur óöldin í Sýrlandi

Mótmælt í Sýrlandi.
Í gær, 12:54 Að minnsta kosti 15 óbreyttir sýrlenskir borgarar voru teknir af lífi án dóms og laga af her landsins í borginni Homs í nótt. Íranar, einn helsti bandamaður Sýrlendinga í alþjóðasamfélaginu, segja að sýrlensk stjórnvöld þurfi meiri tíma til að koma á friði í landinu. Meira »

Hætt komin vegna bakteríusýkingar

Aimee Copeland.
Í gær, 11:34 Þann 1. maí sl. var Aimee Copeland með vinum sínum við Little Tallapoosa ána skammt frá Atlanta í Bandaríkjunum. Hún féll í ána og hlaut skurð á kálfanum en bakteríur, sem valda drepmyndandi fellsbólgu, komust í sárið. Þremur dögum síðar var hún komin á spítala þar sem henni var haldið sofandi í öndunarvél. Meira »

„Munum leggja fram sannanir“

Ratko Mladic, fyrrverandi yfirmaður hers Serba í Bosníustríðinu, svarar nú til saka við Alþjóðadómstólinn í ...
Í gær, 10:41 „Við munum leggja fram sannanir fyrir því að Mladic átti þátt í ölllum þessum glæpum,“ sagði saksóknari við Alþjóðaglæpadómstólinn í Haag í morgun, en réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrverandi yfirmanni hers Serba í Bosníustríðinu, hófust í morgun. Meira »

Myrtu fólk í flóttamannabúðum

Sýrlenski stjórnarherinn.
Í gær, 06:59 Sýrlenski stjórnarherinn skaut á flóttamannabúðir í Daraa héraði í suðurhluta Sýrlands í morgun. Þrír létust, þeirra á meðal eitt barn. Í búðunum hafast við flóttamenn frá Palestínu og Sýrlendingar sem hafa verið hraktir frá heimilum sínum í Gólan hæðum. Meira »

Kosið í Grikklandi 17. júní

Kosið var til þings í Grikklandi 6. maí en stjórnarmyndunarviðræður reyndust árangurslausar.
Í gær, 11:29 Kosið verður að nýju til þings í Grikklandi hinn 17. júní næstkomandi. Kosið var til þings í Grikklandi 6. maí en stjórnarmyndunarviðræður reyndust árangurslausar. Meira »

Hafði þjóðernishreinsanir að markmiði

Ratko Mladic, fyrrverandi hershöfðingi í her Bosníumanna, við réttarhöldin sem hófust í morgun.
Í gær, 08:08 Ratko Mladic, fyrrverandi hershöfðingi í her Bosníumanna, hafði þjóðernishreinsanir að markmiði í Bosníustríðinu. Þetta sagði saksóknari Sameinuðu þjóðanna í morgun, en Mladic er nú fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag, sakaður um þjóðernismorð, glæpi gegn mannkyni og stríðsglæpi. Meira »

Mladic kemur fyrir dómara í dag

Ratko Mladic í Sarajevo árið 1994.
Í gær, 06:47 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, „Slátraranum frá Bosníu“ fyrrverandi hershöfðingja Bosníu-Serba, hefjast að öllum líkindum við Alþjóðaglæpadómstólinn í Haag klukkan sjö að íslenskum tíma. Lögmenn hans sóttu um sex mánaða frest, svo hann gæti kynnt sér ákæruatriði betur og til þess að þeir fengju betri undirbúning. Beiðninni hefur ekki verið svarað. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
JARÐABERJAPLÖNTUR & FALLEG FJÖLÆRBLÓM
Eins og undanfarin 3 sumur verðum við með jarðaberjaplötur til sölu. Það Norsk ...
Bókhald-ársreikningar-skattframtöl
VSK uppgjör, skattframtöl, launaútreikningar, erfðarfjárskýrslur, leigusamningar...
Góð skrifstofuhæð við Ármúla til leigu.
540 ferm að flatarmáli, má skipta í tvær einingar. 13 herbergi og almennt vinnur...
Óska eftir utanborðsmótor 60 til 90 Hp
Óska eftir utanborðsmótor 70 til 90 hp á sanngjörnu verði! e mail: bjoggi11@ma...
 
Íþróttakennari sérkennari
Grunn-/framhaldsskóla
Ertu íþróttakennari ...
Grunnskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Grunnskóla- kennarar athugið ...
Innkaupastjóri og skjalastjóri
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...